Hvernig finnst ykkur ganga...á mánudaginn fór ég að finna fyrir eymslum í hálsinum og það endaði þannig að ég gat varla sofið vegna þess hversu vont það var að kyngja. Fór samt á námskeið á þriðjudeginum með hita og drepast í hálsinum. Fékk samt tíma hjá lækninum og jújú, eins og mig grunaði var ég komin með streptokokka...geggjað..og er því á pensilíni. Björk er búin að vera hálfslöpp alla vikuna en fór nú samt í gær og fékk ný rör í eyrun. Læknirinn spurði hvort við vildum ekki óska okkur þess að Björk fengi ný eyru..svo illa litu þau út. Og hvað haldiði svo í dag, það flæðir út úr eyrunum á henni að vanda og ég ætlaði að taka það versta og þá sat ég allt í einu með rörið úr hægra eyranu...verð að viðurkenna að maður missir móðinn. Þannig að nú bíðum við eftir svörunum, en það voru tekin sýni úr eyrunum á henni í gær, og svo verða lögð ný rör 19.des...nú er þetta orðið ágætt finnst mér. Og svona til að toppa allt saman þá er Davíð líka komin á sýklalyf þar sem hann er líka með streptókokka...þannig að hann fær geggjaðan afmælisdag, bæði þurfa þeir að klára verkefnið í dag og svo að vera hálflasinn...úff.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ DAVIÐ...VONANDI VERÐUR HANN GÓÐUR ÞRÁTT FYRIR ALLT
Athugasemdir
Davíð til hamingju með daginn, Aðalheiður dekraður við hann í dag.
Knús til ykkar allra.
Slaugan
Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 6.12.2007 kl. 11:43
HJARTL. TILHAMINGJ MEÐ UMMLIÐ
-Þú nærð mér aldrey! AHAHHHAHAHAHAHAHA (HB)
elsku eyru og strepto - viljið þið vera til friðs!!!
ykkar að eylífu - Hildigunnur og Eik - ofurspenntar að hitta ykkur
hildigunnur Birgisdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 12:19
Elzku Davis okkar!
Innilega til hamingju með daginn! Og vonandi batnar ykkur öllum. Hlökkum til að sjá ykkur um jólin. Nissakveðjur frá Reykjalundi, Oddný og Maja.
Oddný og Maja pæja (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 14:35
Elsku Davíð, til hamingju með daginn!
Það er ljótt að heyra af óförum ykkar allra. Vonandi batnar ykkur öllum sem allra fyrst. Sérstak knús frá ömmu til Bjarkar.
Erla amma (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 14:55
Hæ hæ, kæru þið öll. Tl hamingju Davíð aftur með daginn. Ég var hætt að kíkja hér inn, það gerðist ekkert leeeeeengi. Svo bara allt í einu gerðist eitthvað. Eins gott fyrir þessa streptokokka að koma sér í burt svo þið getið nú jólast í friði og að Björkinni fari að batna í eyrunum. Eru ekki bara rörin eitthvað gölluð :) ? Hlakka til að sjá ykkur- By the way, Tommi og Sissí eignuðust stelpu 29.nóv.,Chaline heitir hún. kv.amma Guðbjörg
Guðbjörg (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 13:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.